Jæja þá er maður komin heim úr Reykjadal, ég skellti mér þanngað
í viku aðeins til að slaka á þó það hafi verið lítið um afslöppun.
En ég ætla að segja ykkur ferðasöguna hérna.
Ég var komin á upp eftir á föstudegi og var þá bara tekið lífinu
með ró og og tekið uppúr töskum og komið sér fyrir, svo var fyrsta
kvöldvakan þar sem sungið var í kareoki og ákvað ég að taka lagið
með Gunna og Paxa 
Svo byrjaði actionið á Laugardeginum, það var skellt sér í sund
um morguninn og var svammlað þar í nokkra stund. Eftir hádegi var
gerð vinabók og voru margir sem kvittuðu í mína
Eftir
kaffi fór ég svo snyrtinámskeið sem var þvíllíkt
fjör. Svo um kvöldið þá var haldin ógeðiskeppni þar
sem blandað var bakaðar baunir, chilli, rjómi, pizzasósa og margt
fleira get ekki sagt að mig hafi langað til að smakka þetta en
fóstran mín var neydd til þess 
Það var aðeins rólegra á Sunnudaginn, við vorum í útileikjum sem
var ekkert smá gaman, svo var málað eftir hádegi og voru þá 2 sem
skrifuðu í vinabókina til viðbótar. Svo eftir kaffi þá var skellt
sér í sund svona aðeins til að fríska uppá sig.
Á mánudeginum var svo skellt sér aftur í sund, svo eftir kaffi
var setið úti og gerðir blómakransar á meðan á Sigurgeir hélt
tónleika sem var bara gaman því að hann kann næstum öll lög
Svo
um kvöldið var kareoki keppni þar sem verðlaun voru í boði
Ég tók
lag úr Grease með Eddu og Ástrósu og verð ég bara að monta mig
aðeins hérna því að ég fékk heiðursverlaun þetta kvöld
Á Þriðjudaginn skellti ég mér auðvitað í sund eins og alla aðra
daga
svo fengum við gest til okkar, Jónsi í svörtum fötum
kom og var að kenna okkur á hin ýmsu hljóðfæri líkamans og svo tók
hann auðvitað lagið, seinnipartinn var svo farið og baka kellogs
kökur fyrir kvöldið.
Á Miðvikudaginn mætti svo Jónsi aftur með gítarinn og
upptökugræjur og var að taka upp nýtt lag með okkur og fáum
við öll eintak af disknum þegar það hann kemur út, svo tók hann
nokkur lög fyrir okkur
Eftir að hann fór var skellt
sér í útilkeiki t.d. fótbolta. Svo á kvöldvökunni var keila og
kringlukast sem ég vann 
Fimmtudagurinn var svo þannig að ég skellti mér á smá
fyrirlestur um ýmiss konar málefni sem var bara gaman. Svo var
skellt sér í sund til að hressa sig aðeins við. Svo er maður bara
búin að vera að dunda sér að klára dagbókina og setja inn myndir og
svona alls konar þar sem ég var á leiðinni heim daginn eftir. Svo
var síðasta kvöldvakan sem var bara stuð
Á Föstudeginum var ég svo komin heim í hádeginu og var ég ekkert
smá þreytt, þó að það sé gott að komast aðeins í burtu þá er líka
alltaf gott þegar maður kemur heim aftur. Ég átti alveg yndislega
viku í Reykjadal núna, svo er ég að fara í Nýjabæ eftir viku og á
ég ekki von á öðru en að það verði jafn gaman
kv. Laufey